Við viljum Félagslega húsnæðistefnu sem leyfir gæludýrahald
Contact the author of the petition
Hvergi í hinum vestræna heimi er hundahald eins strangt og á Íslandi en það er kominn tími til að breyta því, folk fær ekki íbúð af því að það á hund! Að eiga hund er afskaplega gott fyrir sálina en erlendis eru hundar á hjúkrunarheimilum og heimilum fyrir börn með þroskaheftir, gæludýrin okkar eru hluti af fjölskyldunni og því er ekki hægt að ætlast til að fólk losi sig þau eins og hvert annað rusl þegar það þarf að flytja!
Dýr eru fjölskyldumeðlimir
Fólk reykir inni hjá sér og lyktin berst á milli íbúða og í sameign. Börn leika sér með mismiklum hávaða sem berst einnig á milli íbúða. hvorugt er bannað í fjölbýli. Og ofnæmisbullið kaupi ég ekki. Fyrir nú utan að gæludýr fólks er oft þess besti vinur.
Mannréttindabrot
Þetta er bara hreint og klárt mannréttindabrot af hálfu þessara félagslegu leigufélaga. Gæludýrin eru hluti af fjölskyldunni og oft nauðsynleg hjálp þegar kemur að líkamlegum og andlegum kvillum. Það er ekki bara að félagslega kerfið stuðli að sársauka og sorg fyrir viðkomandi fjölskyldu, sem þarf kannski að drepa dýrið sitt þar sem ekki fá þau öll nýtt heimili, heldur er félagslega kerfið líka að stuðla að lélegri heilsu hjá viðkomandi.
Ég fór t.d. nánast aldrei út að labba áður en ég fékk hund en nú fer ég nánast á hverjum degi marga kílómetra með hundinum mínum. Ég væri svo líklega óvinnufær eða langleiðina í það vegna andlegra kvilla ef ég ætti ekki hund sem ég þarf að hreyfa, þjálfa og knúsa á hverjum degi. :)
| This discussion has been closed. |