Stoppum Julien Blanc!
Contact the author of the petition
This comment has been removed by the person who wrote it.
This comment has been removed by the person who wrote it.
Ógeð.........
Er þessi persóna hér að njósna?
Það er einhver að skrifa athugasemdir hérna mjög greinilega með hjálp Google translate. Ég myndi giska á það væri þessi persóna sem er að reyna að koma hingað sjálfur. En þið? Ef þetta væri til dæmis útlendingur sem byggi hér og kynni smá íslensku myndi athugasemdirnar vera gerðar allt öðruvísi. Þetta eru ekki svona eðlilegar villur sem maður heyrir, heldur málfarsvillur sem ekki eru útskýranlegar nema þegar maður hugsar um leitarvélar. Allir sem vita neitt um okkur Íslendinga að við skiljum ensku og svona, en kannski ekki öllum sem langar að ferðast hingað en þekkja lítið til. Hver annar ætti þetta að geta verið? Hann er greinilega mjög vel gefinn ef hann heldur fólk sjái ekki í gegnum þetta.
Forvitnilegt
Það er skrýtið ekki satt, að engar varnir hafi borist fyrir þennan mann hingað nema með aðstoð Google translate? Hver ætli sé nú á bak við það? Þetta er greinilega hvorki eftir útlending hér búsettan, né neinn sem þekkir neitt til hér, heldur villur sem aðeins gerast með hjálp þýðingavéla.
Er Gaspard þessi alræmdi maður?
"Gaspard" gæti verið þessi alræmdi maður sjálfur, ef þú spyrð mig.
Source: Mikil reynsla af þýðingarvélum. Vinn með innflytjendum og útlendingum alla daga. Þekki muninn á eðlilegum villum og þýðingavélavillum.
Nú nú
"Gaspard" virðist á ákveðnum tímapunkti hafa leigt sér aðstoð einhvers óprúttins íslenskumælandi aðila og varð skyndilega eðlilega talandi. Ætli það séu "sponsorar" hans? Segið mér annars, stúlkur, hvað myndi margar koma nálægt manni sem hefði farið á svona viðurstyggilegt námsskeið? Einhver með það lága sjálfsvirðingu?
Re: Re: Re: afskiptasemi
#63: gabe - Re: Re: afskiptasemi
hvort hann sé dæmdur afbrotamaður eða ekki kemur málinu ekki við, hann er að beisiklí að biðla leiðbeiningum um hvernig eigi að misnota konur. tjáningarfrelsi nær ekki yfir niðslu a minnihlutahópum og mannhatri
Stay away!!!
Rasshaus ársins.
Ekki séns að ég skrifi undir þetta kjaftæði.
Íslendingar eru svo meðvirkir, takið eina öfgafærslu af sorpinu knuz.is og svo er kominn undirskriftalisti, að öðru, hvar skrái ég mig eiginlega á þetta námskeið?
Re:
Einn málsháttur fyrir þennan gaur... bara einn
Öllu gamni fylgir nokkur alvara
svartur húmor eða ekki...
| This discussion has been closed. |
Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re:
#54: Gaspard - Re: Re: Re: Re: Re: Re:
Ég nota sömu rök og þú og segi: háskólamenntaðir sérfræðingar sem byggja sínar aðferðir á meðferðum sem hefur verið sýnt fram á með rannsóknum að virka og hafa þess utan fengið þjálfun í sínu fagi, tala nú ekki um það að þeir starfa allir undir siðareglum sem tryggja það að fólk sem til þeirra kemur er verndað fyrir því að vera lítillækkað, niðurlægt, skaðað á sál eða líkama og að um það sem talað er ríkir þagnarskylda, eru einmitt með in-field reynslu við að aðstoða fólk við að eiga við þunglyndi, almennan kvíða, félagskvíða, ofsakvíða, félagslega einangrun og svo framvegis og svo framvegis :)
Já ég tel þetta fólk vita mun meira um það að aðstoða fólk sem glímir við andlega sjúkdóma sem þessa en bara einhver gæi úti í bæ sem þykist kenna mönnum pottþéttar aðferðir að ná sér í gellur, níðist á konum bæði í orðum og á blaði og segir svo "úpsí, þið bara fattið ekki djókið" þegar einhver gagnrýnir.
Þætti þér semsagt allt í lagi að systir þín, mamma þín, frænka þín, vinkona þín eða dóttir þín væri ein af konunum sem hefði lent í því að vera "pikkuð" upp af þessum "pikk öpp listamanni"?
Fyrir utan það að konur eru ekki hlutir sem þarf að læra að "pikka upp". Konur eru mannverur, alveg eins og karlar, og það virkar nú alveg hreint ágætlega að koma fram við þær sem slíkar. Ef þú hrífst af konu, talaðu þá við hana eins og jafningja, bjóddu henni á deit ... og ef hún segir nei? Þá þýðir það einfaldlega bara NEI, ólíkt því sem blessaður Julien kallinn kennir á sínum vísindalegu fyrirlestrum.
En: Fyrst þú styður manninn svona í því sem hann gerir og fyrst hann er svona ótrúlega fær þerapisti ættirðu alveg að geta komið fram undir eigin nafni. Það að þú þorir því ekki talar sterkast hér.
En annars hvet ég þig til að lesa þér til um rannsóknir sem fjalla um vísindalega sönnuð meðferðarúrræði og þá áttarðu þig á hvert ég er að fara.
Vonandi allavega. Annars er mér alveg sama ;)